You are viewing [info]mousekevitz's journal

Previous Entry | Next Entry

Toppurinn að vera í teinóttu.

Muniði þegar Ingibjörg Stefáns beit ekki á ryðgaðan öngul og fór á sýru-nostalgíu tripp með Helga Björns? Aðrar fyrirmyndir voru Svala Björgvins í Scope og Emelíana Torrini í Spoon og versluðu þær flippuðu fötin sín í Flauel á Bankastrætinu. Torrini var einnig í Gus Gus og kom fram í Stonefree í Borgarleikhúsinu á hátindi vinsælda sinna. Palli Banine raulaði með Bubbleflies og var ógeðslega hott. Spúútnik var enn í kjallara Fríðu Frænku og átti eftir að flytja fjórum sinnum. Allir sem voru hipp og kúl versluðu þar og djömmuðu á Café au Lait þar sem DJ Kári spilaði acid jazz og var með dredda. Úlfur Chaka var líka með dredda og söng um krómósóm. Biggi í Maus var með hanakamb og Heiðar í Botnleðju og Elísa í Kolrössu Krókríðandi voru kærustupar. Svo var KGB með sítt hár og deitaði einnig hljómsveitarmeðlim Kolrössu. Frikki Weis var með Dýrleifu og saman ráku þau Frikka og Dýrið og djömmuðu á Kaffibarnum. Á þessum tíma var Damon Albarn fastagestur á KB. Prodigy voru alltaf á Íslandi og fólk dó úr alsælu á UXA. Þossi á X-inu var duglegur að spila breska popptónlist og hver Britpoppgrúppan á fætur annari lagði leið sína til Íslands. Það var eðlilegt að sjá Jarvis Cocker á djamminu. Fólk dópaði á Tunglinu og unglingarnir héngu á Villta Tryllta Villa og drukku landa bragðbættan með perubrjóstsyk. Stelpurnar voru í litríkum, fiðrildaskreittum blússum sem þær keyptu í Noir fyrir fermingapeningana sína og strákarnir í útvíðum flauelsbuxum og Dr. Martins skóm. Þetta voru sömu krakkarnir sem árið áður gengu í páskagulum og neonbláum Jees buxum úr Gallabuxnabúðinni og enn fyrr í vaxjökkum og hermannaklossum og skreyttu sig með marglituðum plastsnuddum í snudduæðinu svokallaða. Þessir krakkar söfnuðu Heyrðu seríunni, ásamt Algjöru Mösti, Ýktu Stöffi og Reifi í tréfótinn. Svo var horft á SPK og vonað að bekkurinn sinn væri næsti hópurinn til að fylgjast með slímúrhelli og kókosbolluáti í stúdíóinu. Þessi árgangur var einnig ábyrgur fyrir að gera Swichdance með Quarashi vinsælt sem var spilað í öllum betri partýum í Hlíðahverfinu um mánaðabil. Andrea Róberts og Móheiður Júnusdóttir voru forsíðustúlkur á töff tímaritum eins og “O” og svo var Móa líka gift Eyþóri Arnalds sem var enn síðhærður, grannur og álitinn kyntákn. Á meðan þóttist Stebbi Hilmars vera töff með Pláhnetunni og Rúnni Júl stofnaði GCD með Bubba og kom ávallt fram í leðurbuxum og blúnduskyrtu. Ó-ið hóf göngu sína á RÚV og var stjórnað af Markúsi Þór og Dóru Takefúsu, sem tók við af Selmu Björns. Þessi þáttur varð síðar Vélin í umsjón Kormáks og einhverrar stelpu sem enginn man lengur hvað heitir. Páll Óskar var í stanslausu stuði, Páll Rósinkrans var með kleprað hár og enn í ruglinu, og Daníel Ágúst var poppari í hippafötum. Heiðar snyrtir var virðulegur maður sem talaði um tísku í útvarpsþáttum. Unun var hressasta poppgrúppan og Heiða og Dr. Gunni voru kærustupar. Bubbi fór til Kúbu og uppgötvaði Buena Vista Social Club löngu áður en þeir voru uppgötvaðir af einhverjum kvikmyndagerðarmönnum. Árlega var haldin myndbandasamkeppni á RÚV og Todmobile unnu alltaf. Popp og Kók sýndi tónlistarmyndbönd með skræpóttum grafíkmyndskeiðum inn á milli. Sjónvarpsvísirinn kom út mánaðarlega og auglýsingagrafík Stöðvar 2 var stórt auga yfir foss. Beverly Hills hét Vinir og Vandamenn og Naked Gun hét Beint á ská.

Hverju er ég að gleyma?
frontpage tracker

Comments

( 4 comments — Leave a comment )
(Anonymous) wrote:
Aug. 10th, 2007 11:20 pm (UTC)
frábær færsla
haha Gulla þvílík fortíðarþrá liggur yfir þessari færslu en ég fór hratt til baka og sakna þessa tíma þvílíkt...
Eina sem þú gleymdir var að Bubbi fór líka til Kanarí og hitti frænka þín hann þar á stöndinni..og þessi sama frænka þín átti Páll Banini fyrir lover...
Haha..djók.
verðum að hringjast á einhverntímann..síminn minn er 612-205-2180
(Anonymous) wrote:
Aug. 20th, 2007 01:05 am (UTC)
hahhaha held þú hafir ekki gleymt neinu. sjónvarpsvísirinn!!! o my god!
eyrun
(Anonymous) wrote:
Aug. 26th, 2007 09:52 pm (UTC)
Hvernig í ósköpunum mannstu þetta allt!!??
Þú ættir að senda þessa upprifjun í eitthvað blað á Íslandi. Það yrði örugglega prentað :) Kv mamma
(Anonymous) wrote:
Apr. 2nd, 2011 11:40 pm (UTC)
Svei þessu bara...
Ég er af þessum aldri en ég einhvernveginn hálfroðnaði við að rifja þetta upp...
( 4 comments — Leave a comment )

Latest Month

April 2012
S M T W T F S
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930     

Page Summary

Powered by LiveJournal.com